| |
Stjórnandi Léttsveitarinnar frá upphafi er Jóhanna V. Þórhallsdóttir.
Hún lærði söng í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í Reykjavík, við Royal Northern College of Music í Manchester, í Vín og Fiorensuola. Jóhanna hefur sungið í kórum frá 16 ára aldri. Hún hefur verið einsöngvari með kórum, í óperum, leikhúsi og með hljómsveitum, þ. á m. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Jóhanna gaf út sóló geisladisk fyrir jólin 1997. Auðvitað hefur Jóhanna alltaf sungið einsöng á tónleikum Léttsveitarinnar. Auk þess sem hún er nú í hljómsveit sem heitir Six Pack Latino, sem gaf út geisladisk fyrir jólin 1999 með skemmtilegri mambó og salsa tónlist. Hún er einnig í 4KLASSÍSKUM, ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur, Björk Jónsdóttur og Signýju Sæmundsdóttur. Hún stjórnar einnig barnakór Bústaðakirkju og Bjöllukór Bústaðakirkju. Heimasíða Jóhönnu. |
| |
 |
| |
Undirleikari Léttsveitarinnar frá upphafi er Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Hún lauk námi í tónfræðigreinum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundar nú nám í orgelleik. Hún er meðlimur í Bjargræðiskvartettinum og Sönghópnum Reykjavík 5. Alla hefur útsett fjöldann allan af lögum fyrir Léttsveitina og aðra. |
|